Fotbolti.net
03.07.26 - 18:42
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Postecoglou ráðinn stjóri Al-Nassr (Staðfest)

Postecoglou ráðinn stjóri Al-Nassr (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Ange Postecoglou, fyrrum stjóri Tottenham og Nottingham Forest, hefur verið ráðinn stjóri sádi arabíska félagsins Al-Nassr.

Al-Nassr vann sádi arabísku deildina á síðustu leiktíð en það var í fyrsta sinn síðan Cristiano Ronaldo gekk í raðir félagsins árið 2023.
Liðið vann deildina undir stjórn Jorge Jesus en hann var aðeins með eins árs samning. Roberto Martinez, þjálfari Ronaldo hjá portúgalska landsliðinu, var orðaður við starfið.

Postecoglou snýr aftur í þjálfun eftir að hann var rekinn frá Forest í október en hann var aðeins rúman mánuð í starfi hjá enska félaginu.

Tottenham vann Evrópudeildina undir stjórn Postecoglou í fyrra een hann var rekinn mánuði síðar. Hann vann þrennuna hjá Celtic en hann stýrði skoska félaginu í tvö tímabil og liðið vann fimm titla undir hans stjórn.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.