03.08.26 - 10:39
Brynjar Ingi Erluson
Hornicek til Newcastle (Staðfest)

Mynd: Newcastle United

Mynd: Newcastle United
Newcastle Uniteid hefur gengið frá kaupum á tékkneska markverðinum Lukas Hornicek frá portúgalska félaginu Braga.
Þessi 24 ára gamli tékkneski landsliðsmarkvörður kemur til Newcastle fyrir 25,7 milljónir punda eftir að félagið virkjaði riftunarákvæði í samningi hans.
Hornicek skrifaði undir fimm ára samning og er annar markvörðurinn sem Newcastle fær til sín í sumar en félagið sótti einnig hinn tvítuga Ewen Jaouen til Reims fyrr í glugganum.
„Síðustu dagar hafa verið algjör tilfinningarússíbani, allt frá því ég heyrði fyrst af áhuga Newcastle. Nú er ég kominn hingað og er í skýjunum. Þetta er frábært tækifæri í nýrri deild og ég er mjög spenntur.“
„Það hefur verið tekið ótrúlega vel á móti mér og ég hef fundið fyrir miklum hlýhug frá félaginu. Allir hafa verið boðnir og búnir að hjálpa mér að koma mér fyrir.“
„Ég veit að Newcastle er mikil fótboltaborg. Það mæta 52 þúsund stuðningsmenn á St. James' Park, skapa ótrúlega stemningu og ýta liðinu áfram í hverjum leik. Ég get ekki beðið eftir að spila fyrir framan þá,“ sagði Hornicek.
Hornicek er ætlað að slá Nick Pope út úr byrjunarliðinu en enski markvörðurinn gerði fjölmörg mistök á síðasta tímabili. Aaron Ramsdale var á láni hjá Newcastle í fyrra en sneri aftur til Southampton að tímabilinu loknu.
Hornicek hélt sjö sinnum hreinu í Evrópudeildinni á síðasta tímabili, oftar en nokkur annar markvörður í keppninni. Alls hélt hann tólf sinnum hreinu þegar Braga hafnaði í fjórða sæti portúgölsku deildarinnar.
Hann var í landsliðshópi Tékka á heimsmeistaramótinu í sumar en kom ekki við sögu.

Newcastle United are delighted to announce the signing of Czech Republic international goalkeeper Lukáš Horní?ek from Portuguese side SC Braga.
— Newcastle United (@NUFC) August 3, 2026
The 24-year-old joins for an undisclosed fee and has penned a five-year-deal at St. James’ Park.
Welcome, Lukáš! ???????? pic.twitter.com/gj28pG74Yj