03.08.26 - 15:28
Brynjar Ingi Erluson
Jordan Henderson til Chelsea (Staðfest)

Mynd: Chelsea FC

Mynd: Chelsea FC
Jordan Henderson hefur skrifað undir tveggja ára samning við enska úrvalsdeildarfélagið Chelsea, en hann kemur til félagsins eftir að hafa rift við Brentford.
Xabi Alonso, nýr stjóri Chelsea, vildi fá fleiri reynslumikla leikmenn inn í hópinn til þess að bæði berjast um sæti og styðja við ungviðinn.
Danny Welbeck var fenginn frá Brighton en hann skrifaði undir tveggja ára samning á dögunum og nú er Henderson formlega genginn í raðir félagsins.
„Þegar maður horfir á stærð félagsins, stjórann sem ég ber gríðarlega virðingu fyrir og gæðin í leikmannahópnum var þetta einfaldlega of stórt tækifæri til að hafna.“
„Það heillaði mig líka hversu mikinn metnað eigendurnir hafa fyrir því að gera Chelsea aftur að sigursælu félagi og koma því á rétta braut“
„Mitt hlutverk er að gefa allt sem ég á á hverjum einasta degi, bæði innan vallar og utan, og hjálpa liðsfélögum mínum eins mikið og ég get. Ég er ótrúlega spenntur að hefja þetta ævintýri,“ sagði Henderson.
Henderson er 36 ára gamall varnarsinnaður miðjumaður sem kom upp úr akademíu Sunderland. Hann fór ungur til Liverpool, varð síðar fyrirliði félagsins og vann þar fjölda titla.
Hann yfirgaf Liverpool árið 2023 og gekk til liðs við Al Ettifaq en staldraði stutt við í Sádi-Arabíu áður en hann fór til Ajax. Henderson samdi síðan við Brentford á síðasta ári og lék 32 deildarleiki fyrir félagið, þar af 22 í byrjunarliðinu.
Í sumar varð hann fyrsti Englendingurinn til að taka þátt á sjö stórmótum með landsliðinu þegar hann kom inn af bekknum gegn Panama í riðlakeppni heimsmeistaramótsins. Henderson á að baki 90 A-landsleiki fyrir England og hefur skorað í þeim þrjú mörk.

Hendo at the Chels! ???? pic.twitter.com/iex7XdQGBr
— Chelsea FC (@ChelseaFC) August 3, 2026