03.08.26 - 16:30
Brynjar Ingi Erluson
Pochettino framlengir í Bandaríkjunum (Staðfest)

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Argentínski þjálfarinn Mauricio Pochettino verður áfram þjálfari bandaríska karlalandsliðsins, en hann hefur framlengt samning sinn út HM 2030.
Pochettino tók við bandaríska landsliðinu fyrir tveimur árum og stýrði því á heimsmeistaramótinu í sumar.
Bandaríkjamenn unnu tvo leiki í riðlakeppninni og lögðu síðan Bosníu í 32-liða úrslitum. Ævintýrinu lauk gegn Belgíu í 16-liða úrslitum.
Bandaríska fótboltasambandið var ánægt með frammistöðu liðsins og hefur framlengt samning Pochettino fram yfir heimsmeistaramótið árið 2030.
Það verður nóg að gera hjá Pochettino og lærisveinum hans fram að því. Bandaríkin taka þátt í Þjóðadeild CONCACAF árin 2027 og 2029 auk Gullbikarsins.

Committed to our future. ??
— U.S. Soccer Men's National Team (@USMNT) August 3, 2026
Mauricio Pochettino and @ussoccer have agreed on a new contract to continue as the #USMNT head coach through 2030! ????????
????: https://t.co/Woluj2pyPh pic.twitter.com/PB0hqEQVar