03.08.26 - 14:30
Brynjar Ingi Erluson
Svíþjóð og Wales draga stuðning sinn við Infantino til baka

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Fótboltasambönd Svíþjóðar og Wales hafa dregið til baka stuðning sinn við endurkjör Gianni Infantino sem forseta FIFA eftir atburði síðustu daga.
Forsetakosningar FIFA fara fram í mars á næsta ári en fjölmörg aðildarsambönd höfðu þegar lýst yfir stuðningi við endurkjör Gianni Infantino.
Áform hans og FIFA um að hleypa fjárfestum að heimsmeistaramótinu og öðrum verkefnum sambandsins féllu hins vegar um sjálf sig eftir hávær mótmæli. Í kjölfarið hafa margir hvatt Infantino til að segja af sér.
Infantino ætlar áfram að sækjast eftir endurkjöri en velska fótboltasambandið dró stuðning sinn við hann til baka í dag og hefur sænska sambandið einnig snúið við honum baki.
Samkvæmt enskum fjölmiðlum ætlar enska fótboltasambandið að fylgja fordæmi þeirra. Búist er við að fleiri sambönd bætist í hópinn á næstu dögum og vikum.
Infantino nýtur þó enn stuðnings víða í Afríku og Mið-Austurlöndum, meðal annars frá fótboltasamböndum Egyptalands, Katars, Líbanons og Marokkó.