03.09.26 - 10:57
Elvar Geir Magnússon
Mike Dean viðurkennir að hafa spilað leiki meðan hann dæmdi - Fær hörð viðbrögð

Mike Dean viðurkennir að hafa sýnt mikla ófagmennsku í störfum sínum sem dómari.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: EPA

Mike Dean, fyrrum dómari í ensku úrvalsdeildinni, hefur skapað heita umræðu með því að viðurkenna að hann hafi verið að spila leiki með sjálfum sér og kollegum sínum meðan hann dæmdi í deildinni.
Dean segist meðal annars hafa ákveðið að reyna að ná sem flestum mínútum án þess að blása í flautuna eða halda sér sem lengst inni í miðjuhringnum.
Þetta segir hann í nýju viðtali og hefur hlotið hörð viðbrögð. Hann þykir hafa sýnt mikla ófagmennsku og margir stuðningsmenn hafa kallað eftir því að skoðað verði hvort svona hlutir viðgangist meðal dómara.

Dean er einn þekktasti dómari í sögu ensku úrvalsdeildarinnar en honum hefur aldrei leiðst athyglin og var oft með furðulega líkamstjáningu meðan hann dæmdi.
„Það voru leikir þar sem við vorum að spila til gamans, sögðum: 'Allt í lagi, byrjum núna. Sjáum hversu lengi við getum haldið áfram án þess að ég flauti.'“ segir Dean í hlaðvarpsviðtali við Jamie Vardy.
„Ég gerði þetta nokkrum sinnum í úrvalsdeildinni, áður en VAR kom til sögunnar auðvitað. Ég náði 20–25 mínútum án þess að flauta. Ég sleppti öllu."
„Annað sem við lékum okkur að, ég stóð í miðjuhringnum og sá hversu lengi ég gæti verið í miðjuhringnum áður en ég þurfti að fara úr honum. Það var bara ég að grínast. Strákarnir á línunni voru að mana mig í þetta. Ég náði um 15 mínútum einu sinni í einum leik, án þess að fara úr miðjuhringnum."
Viðtalið hefur hlotið mikil viðbrögð á samfélagsmiðlum þar sem Dean er harðlega gagnrýndur fyrir að vera að hlæja að þessum vinnubrögðum sínum. Enskir fjölmiðlar hafa óskað eftir viðbrögðum frá enskum dómarasamtökum.

???? "Prat!"
— talkSPORT (@talkSPORT) September 3, 2026
???? "What an idiot... it's not funny!"
Gabby Agbonlahor is disgusted by Mike Dean revealing he'd play secret games while he refereed Premier League matches! ???? pic.twitter.com/G1qLC4TgQn
Oh Mike Dean, this is not a good look…#NUFC pic.twitter.com/AvPBRmOj2H
— NUFC Blog (@NUFCBlogcouk) September 3, 2026

Mynd: EPA