Fotbolti.net
03.11.04 - 06:34
Magnús Már Einarsson

Advocaat tekur við Gladbach (Staðfest)

Advocaat tekur við Gladbach (Staðfest)
Canon
Dick Advocaat hefur tekið við þjálfun þýska Bundesliguliðinu Borussia Mönchengladbach. Advocaat sem að er 57 ára gerði tveggja og hálfs árs samning við Gladbach eða til sumarsins 2007 en eins og margir vita þá kapinn sem landsliðsþjálfari Hollendinga eftir EM í sumar.
Gladbach rak Holger Fach í síðustu viku eftir 3-0 tap gegn Bochum og þá var aðstoðarmaður hans Stefan Mücke einnig látinn fara. Advocaat sem að hefur einnig þjálfað PSV og Glasgow Rangers mun taka af Horst Köppel sem að stjórnaði liðinu tímabundið en undir stjórn Köppel náði liðið að sigra Bayern Munchen um síðustu helgi og sem stendur er Gladbach í fjórtánda sæti.

Fyrsti leikur Advocaat með Gladbach verður gegn Mainz á útivelli um næstu helgi.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.