Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 03. desember 2020 13:42
Magnús Már Einarsson
Steinþór Freyr framlengir við KA
Mynd: Hulda Margrét
Steinþór Freyr Þorsteinsson hefur framlengt samning sinn við KA um eitt ár en fyrri samningur hans við félagið rann út eftir tímabilið.

„Þetta eru miklar gleðifregnir enda er Steinþór öflugur leikmaður og flottur karakter sem hefur komið sterkur inn í félagið," segir á heimasíðu KA.

„Það er afar jákvætt skref að halda Steinþóri áfram innan okkar raða en auk þess að vera öflugur leikmaður er hann frábær liðsmaður auk þess að vera flott fyrirmynd fyrir hina fjölmörgu ungu leikmenn okkar og mun halda áfram að miðla sinni miklu reynslu til þeirra."

Steinþór lauk nýverið sínu fjórða tímabili með KA eftir að hafa komið frá Sandnes Ulf í Noregi. Steinþór sem er 35 ára hefur leikið 60 leiki fyrir KA í deild og bikar og hefur í þeim gert fimm mörk.
Fjögur þessara marka komu í sumar en KA hefur ekki tapað leik þegar Steinþór hefur komist á blað.

Steinþór er fæddur árið 1985 og er uppalinn hjá Breiðablik í Kópavogi þar sem hann hóf að leika með meistaraflokki aðeins 17 ára gamall. Árið 2009 gekk hann til liðs við Stjörnuna og sló þar í gegn og var valinn í A-landslið Íslands sama ár. Steinþór hefur leikið 8 landsleiki fyrir Ísland og fjölmarga yngrilandsliðsleiki.
Athugasemdir
banner
banner
banner