Byrjunarlið Hollands og Svíþjóðar: Isak og Gyökeres fremstir

Alexander Isak

Mynd: EPA

Alexander Isak

Mynd: EPA
Holland og Svíþjóð mætast í 2. umferð í F-riðli á HM í kvöld. Svíþjóð tryggir sér sæti í 32-liða úrslitum með sigri.
Það er ein breyting á liði Hollands frá 2-2 jafntefli gegn Japan. Brian Brobbey, framherji Sunderland kemur inn fyrir Crysencio Summerville, framherja West Ham.
Lið Svíþjóðar er óbreytt frá 5-1 sigri gegn Túnis. Yasin Ayari, leikmaður Brighton, er í liðinu en hann skoraði tvennu gegn Túnis. Victor Gyökeres, leikmaður Arsenal, og Alexander Isak, leikmaður Liverpool, eru í fremstu víglínu. Isak æfði einn í aðdraganda leiksins en hann er klár í slaginn.

Holland: Verbruggen, Van de Ven, Van Dijk, Van Hecke, Dumfries; Reijnders, De Jong, Gravenberch; Gakpo, Malen, Brobbey
Svíþjóð: Nordfeldt; Lindelof, Hien, Lagerbielke; Gudmundsson, Ayari, Karlstrom, Bernhardsson; Nygren; Isak, Gyokeres

Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.
Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.
Kvöldin verða geggjuð í sumar!