Fotbolti.net
20.06.26 - 16:28
Jóhann Þór Hólmgrímsson

2. deild: Magni með magnaðan sigur á Selfossi - Kormákur/Hvöt náði í jafntefli

2. deild: Magni með magnaðan sigur á Selfossi - Kormákur/Hvöt náði í jafntefli
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Tveimur leikjum er lokið í 2. deild í dag. Magni vann ansi óvæntan sigur á Selfossi á Grenivík.

Staðan var markalaus í hálfleik en Guðni Sigþórsson kom Magna yfir á 67. mínútu. Aðeins þremur mínútum síðar bætti Viðar Már Hilmarsson við öðru marki Magna.

Viðar Örn Kjartansson náði að minnka muninn með góðu skoti en Magnamenn voru ekki hættir og bætti tveimur mörkum við undir lokin. Magni jafnaði Þrótt Vogum að stigum en situr áfram á botninum. Selfossi mistókst að komast á toppinn en liðið er í 3. sæti með 15 stig, stigi á eftir toppliði Kára.

KFA náði tveggja marka forystu gegn Kormáki/Hvöt á SÚN-vellinum. Gestirnir gáfust ekki upp og náðu að jafna metin áður en flautað var til leiksloka. Kormákur/Hvöt er í 6. sæti með 12 stig en KFA er í 10. sæti með tíu stig.
Magni 4 - 1 Selfoss
1-0 Guðni Sigþórsson ('67 )
2-0 Viðar Már Hilmarsson ('70 )
2-1 Viðar Örn Kjartansson ('78 )
3-1 Alexander Ívan Bjarnason ('83 )
4-1 Kristinn Þór Rósbergsson ('89 )

KFA 2 - 2 Kormákur/Hvöt
1-0 Geir Sigurbjörn Ómarsson ('23 , víti)
2-0 Jawed Abd El Resak Boumeddane ('69 )
1-1 Hlib Horan ('78 )
1-2 Haukur Ingi Ólafsson ('88 )

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Haukar11+1423
2Dalvík/Reynir11+620
3Selfoss11+219
4Kári11+917
5Kormákur/Hvöt11+1216
6Fjölnir11+415
7Víkingur Ó.11-714
8KFA11+513
9Hvíti riddarinn11-412
10KFG11-1612
11Magni11-1711
12Þróttur V.11-810
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.