Freyr svarar gagnrýni: Hún hefur aldrei verið aðdáandi

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Freyr Alexandersson tók við sem þjálfari Rosenborg á dögunum eftir að hafa verið látinn fara sem þjálfari Brann þar sem hann gerði góða hluti.
Hann kom liðinu í deildarkeppni Evrópudeildarinnar á sínu fyrsta tímabili, endaði með liðið í 4. sæti norsku deildarinnar og kom því í vor í úrslitaleik bikarsins. Liðið hefur hins vegar verið í brasi undanfarið og því var hann látinn taka pokann sinn.

Það eru ekki allir hrifnir af Frey en Renate Blindheim, sérfræðingur hjá norsku sjónvarspsstöðunni TV2, gagnrýndi hann í viðtali við Adresseavisen.
„Ég er spennt að sjá hvað hann tæklar og hvernig Rosenborg mun líta út undir hans stjórn. Þetta var áskorun hjá Brann, það var ekki auðvelt að sjá hvað hann var að reyna að gera," sagði Blindheim.
Freyr svaraði henni þegar hann var spurður út í ummælin.
„Hún hefur aldrei verið aðdáandi minn. Held að hún hafi aldrei hrósað mér. Brann pressaði mest af liðum í allri Skandinavíu. Það er hennar vandamál ef hún skilur ekki eitthvað," sagði Freyr.