Guimaraes, Isak, Kimmich, Diaz, Branthwaite, Mainoo og fleiri góðir í slúðri dagsins
   fös 03. desember 2021 19:44
Victor Pálsson
Fer fögrum orðum um Ronaldo - Sá eini sem kom almennilega fram
Mynd: Getty Images
Fyrrum undrabarnið Freddy Adu fer fögrum orðum um Cristiano Ronaldo, leikmann Manchester United, en þeir eyddu örlitlum tíma saman árið 2006.

Adu var þá aðeins 16 ára gamall en kom á reynslu til Man Utd þar sem Ronaldo spilaði frá 2003 til 2009 og gekk svo aftur í raðir liðsins í sumar.

Að sögn Adu þá var Ronaldo eini leikmaður aðalliðs Man Utd sem kom almennilega fram og bauð hann velkominn til Manchester.

Adu var að lokum ekki fenginn til enska félagsins en ferill hans náði aldrei þeim hæðum sem margir bjuggust við.

„Það tala allir um að Ronaldo sé hrokafullur og hitt og þetta en ég get sagt ykkur það að af öllum leikmönnunum sem voru þarna - hann var sá eini sem reyndi að tala við mig, koma til mín og bjóða mér í mat," sagði Adu.

„Hann var mögnuð manneskja, auðvitað ber ég mikla virðingu fyrir honum en hún varð meiri eftir þetta. Hann varð minn uppáhalds leikmaður bara vegna þess hvernig hann kom fram við mig."

„Við ræddum aðeins saman - ég æfði mest með U23 liðinu, þarna var ég aðeins 16 ára gamall. Ég náði þó tveimur æfingum með aðalliðinu sem var frábært."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner