04.01.05 - 07:08
Magnús Már Einarsson
Davenport til Southampton (Staðfest)

Davenport (til hægri) fagnar marki Darren Bent í U-21 árs landsleik með Englendingum.


Davenport (til hægri) fagnar marki Darren Bent í U-21 árs landsleik með Englendingum.

Tottenham hefur lánað varnarmanninn stóra og stæðilega Calum Davenport til Southampton út þessa leiktíð. Hinn 22ja ára gamli Davenport er fyrsti leikmaðurinn sem Harry Redknapp fær síðan að hann tók við Southampton.
Davenport hefur lítið fengið að spila með Tottenham en hann kom til liðsins frá Coventry síðastliðið sumar. Hann hefur meðal annars verið í láni hjá West Ham en Southamptonmenn vonast til þess að Davenport fái leikheimild fyrir leik liðsins gegn Fulham á miðvikudag.
