Fotbolti.net
04.01.05 - 09:34
Hafliði Breiðfjörð

Redknapp fer til gamla mannsins (STAÐFEST)

Redknapp fer til gamla mannsins (STAÐFEST)
Canon
Nú hefur Tottenham Hotspurs staðfest þær fréttir sem við birtum í morgun um að Jamie Redknapp hafi fengið leyfi til að yfirgefa félagið til að ganga til liðs við Harry föður sinn hjá Southampton.
Redknapp sem er 31 árs gamall gerir hálfs árs samning við Southampton en hann komst í gegnum læknisskoðun hjá félaginu í morgun.

,,Ég er svo spenntur yfir þessu, þetta er frábært félag að koma til og mikil áskorun fyrir mig. Sú staðreynd að ég sé að hjálpa pabba hefur líka áhrif en aðalmálið fyrir mig er að spila á ný."

Redknapp gekk í raðir Tottenham frá Liverpool árið 2002 og spilaði 53 leiki fyrir félagið. Hann var gerður að fyrirliða eftir að Teddy Sheringham fór sumarið 2003 en hefur aðeins spilað 9 leiki í deildinni á leiktíðinni.

,,Michael Carrick spilar vel á miðjunni og ég sá mig ekki komast aftur inn," sagði Redknapp sem mun líklega spila sinn fyrsta leik annað kvöld er liðið mætir Fulham.

Hann þakkaði Tottenham einnig fyrir að leyfa sér að fara. ,,Þeir voru frábærir í málinu og Martin Jol sagði meira að segja að þegar ég lýk ferlinum sem leikmaður ætti ég að koma og ræða við hann um þjálfarastöðu."

Uppfært 12:22
Redknapp skrifaði svo í hádeginu undir hálfs árs samning við félagið svo félagaskiptin eru nú staðfest.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.