Fotbolti.net
04.01.20 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson

Leikmaður Guingamp lést á leið heim af æfingu

Leikmaður Guingamp lést á leið heim af æfingu
Canon

Mynd: Getty Images

Nathael Julan, 23 ára framherji, lést í bílslysi á leið heim af æfingu Guingamp í kringum klukkan 15:00 í gær.
Julan er franskur og hóf ferilinn með Le Havre þar sem hann gerði góða hluti og var keyptur til Guingamp sumarið 2018, þegar félagið lék í efstu deild.

„Guingamp syrgir. Þetta er mikill sorgardagur og allir innan félagsins senda samúðarkveðjur til fjölskyldu Nathael," segir í yfirlýsingu frá félaginu.

„Félagið hefur aflýst æfingaleik sem átti að fara fram í vetrarfríinu. Öll starfsemi félagsins verður stöðvuð á laugardag."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.