04.11.26 - 20:44
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Iraola vonsvikinn: Eitthvað sem við höfum gert mjög vel í deildinni

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Andoni Iraola var vonsvikinn eftir að Liverpool tapaði 3-2 gegn Fenerbahce í Tyrklandi í kvöld.
Liverpool komst tvisvar yfir í leiknum en Vedat Muriqi tryggði Fenerbahce sigurinn þegar um 10 mínútur voru til loka venjulegs leiktíma.

„Aðalástæðan sem ég finn fyrir því að við töpuðum þessum leik er að við fengum á okkur mörk úr þremur föstum leikatriðum. Það er eitthvað sem við höfum gert mjög vel í deildinni, við höfum gert nokkuð vel fram að deginum í dag," sagði Iraola.
„Við vissum að þetta væri einn af styrkleikum Fenerbahce. Við fengum á okkur mark úr aukaspyrnu, horni og meira að segja löngu innkasti í lokin. Þetta eru mörk sem særðu okkur því við komumst tvisvar yfir eftir góð augnablik, að stjórna leiknum, við fundum mörk en fengum á okkur mörk í aðstæðum sem við hefðum klárlega átt að verjast betur."