04.11.26 - 19:49
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Meistaradeildin: Liverpool tapaði - Dramatískur sigur hjá Real Madrid í Grikklandi

Fenerbahce vann Liverpool

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Fenerbahce vann Liverpool

Mynd: EPA

Fenerbahce lagði Liverpool í Tyrklandi í fjörugum leik í Meistaradeildinni. Hinn 19 ára gamli Trey Nyoni kom Liverpool yfir þegar Virgil van Dijk skallaði boltann út í teiginn og Nyoni skoraði með föstu skoti við vítateigslínuna.
Þetta var fyrsta mark Nyoni fyrir Liverpool en hann er yngsti leikmaðurinn til að skora sitt fyrsta mark fyrir Liverpool í Evrópukeppni.

Mason Greenwood jafnaði metin þegar skot hans úr aukaspyrnu fór af Jeremy Jaquet og í netið.
Cody Gakp og Alexander Isak komu inn á 66. mínútu ásamt Florian Wirtz. Isak kom Liverpool yfir þremur mínútum síðar með skallamarki eftir fyrirgjöf frá Gakpo.
Archie Brown jafnaði metin þegar hann skoraði af stuttu færi eftir vandræðagang í vörn Liverpool. Það var síðan Vedat Muriqi sem tryggði Fenerbahce stigin þrjú.
Það var dramatík þegar Real Madrid heimsótti gríska liðið AEK. AEK komst yfir þegar Abdoubakary Koita skoraði með góðu skoti úr teignum. Jude Bellingham jafnaði metin með laglegri hælspyrnu eftir hálftíma leik.
AEK komst aftur yfir en Kylian Mbappe jafnaði metin og Federico Valverde tryggði Real Madrid dramatískan sigur þegar hann skoraði með glæsilegu skoti fyrir utan teiginn í uppbótatíma.
Real er með 12 stig, fullt hús stiga, eftir fjórar umferðir, Liverpool er með níu stig, Fenerbahce með fimm og AEK með þrjú.
AEK 2 - 3 Real Madrid
1-0 Aboubakary Koita ('12 )
1-1 Jude Bellingham ('32 )
2-1 Stavros Pilios ('75 )
2-2 Kylian Mbappe ('78 )
2-3 Federico Valverde ('90 )
Fenerbahce 3 - 2 Liverpool
0-1 Trey Nyoni ('25 )
1-1 Mason Greenwood ('29 )
1-2 Alexander Isak ('69 )
2-2 Archie Brown ('73 )
3-2 Vedat Muriqi ('79 )