Emelía Óskarsdóttir átti frábæran leik þegar Koge vann 2-0 sigur á Nordsjælland í 16-liða úrslitum danska bikarsins í kvöld. Hún lagði upp bæði mörkin í sitthvorum hálfleiknum. Þá spilaði Hafrún Rakel Halldórsdóttir allan leikinn þegar Bröndby vann 6-0 sigur á B93. Staðan var 3-0 í hálfleik.