Fotbolti.net
04.11.26 - 18:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Benítez vill snúa aftur í úrvalsdeildina

Benítez vill snúa aftur í úrvalsdeildina
Canon

Mynd: EPA

Rafa Benítez, fyrrum stjóri Liverpool, hefur áhuga á því að snúa aftur í úrvalsdeildina.

Hann segist horfa mikið á úrvalsdeildina til að kynnast leikaðferðum og leikmönnum deildarinnar.
„Ég horfði á Juventus - Napoli um dagiinn og svo Liverpool Arsenal. Maður sá muninn. Ég kann vel við úrvalsdeildina út af ákefðinni. Það er barátta í öllum leikjum um alla bolta," sagði Benítez.

„Vandamálið er að maður þarf að finna rétta veerkefnið. Það er erfitt að ræða þau mál núna. Ég yrði klárlega ánægður með það ef það verkefni er í úrvalsdeildinni."

Hann stýrði einnig Chelsea tímabundið og var síðast í úrvalsdeildinni með Everton frá 2021-2022.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.