Fotbolti.net
04.11.26 - 14:57
Kári Snorrason

Hópur U19 - Hetjur Þórsara og níu frá erlendum félögum

Þeir Einar Freyr, Sverrir Páll, Ásbjörn Líndal og Þorri Ingólfs eru allir í hópnum.

Þeir Einar Freyr, Sverrir Páll, Ásbjörn Líndal og Þorri Ingólfs eru allir í hópnum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Þórhallur Siggeirsson, þjálfari U19 karla, hefur valið leikmannahóp fyrir leiki í undanriðli EM í Wales 9. - 18. nóvember næstkomandi. Með Íslandi í riðli eru heimamenn í Wales ásamt Spáni og Finnlandi.

Í hópnum eru níu leikmenn á mála hjá erlendum félögum. Þór og Midtjylland eiga flesta fulltrúa eða þrjá talsins.

Alls eru þó sex Þórsarar í hópnum; þrír skráðir í Þór ásamt Þorra Ingólfssyni sem hjálpaði liðinu að halda sér uppi í Bestu deildinni á láni frá Víkingi og þeim Agli Orra og Sigurði Jökli sem eru hjá Midtjylland en eru uppaldir hjá Þór.
Hópurinn
Markverðir
Sigurður Jökull Ingvason – FC Midtjylland
Gylfi Berg Snæhólm – Breiðablik

Útileikmenn
Alexander Ingi Arnarsson – Malmö FF
Alexander Máni Guðjónsson – FC Midtjylland
Alexander Rafn Pálmason – FCN
Ásbjörn Líndal Arnarsson – Þór
Brynjar Óðinn Atlason – ÍA
Egill Orri Arnarsson – FC Midtjylland
Einar Freyr Halldórsson – Þór
Eysteinn Rúnarsson – Grindavík
Gabríel Snær Gunnarsson – Elfsborg
Gunnar Orri Olsen – FCK
Helgi Hafsteinn Jóhannsson – AaB
Sigurður Breki Kárason – KR
Snorri Kristinsson – KA
Styrmir Jóhann Ellertsson – ÍA
Sverrir Páll Ingason – Þór
Sölvi Snær Ásgeirsson – KR
Tómas Óli Kristjánsson – AGF
Þorri Ingólfsson – Víkingur R.
Úr síðasta verkefni U19.

Úr síðasta verkefni U19.

Canon

Mynd: KSÍ

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.