Fotbolti.net
04.11.26 - 21:21
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Hræðilegt gengi Liverpool í Istanbúl

Hræðilegt gengi Liverpool í Istanbúl
Canon

Mynd: EPA

Meistaradeild
Liverpool tapaði 3-2 gegn Fenerbahce í Istanbúl í Meistaradeildinni í kvöld eftir að hafa komist tvisvar yfir.

Þetta var í sjöunda sinn sem liðið mætir tyrknesku liði í Istanbúl en Liverpool hefur aðeins náð í eitt jafntefli og tapað sex.
Liverpool vann hins vegar frægan úrslitaleik í Meistaradeildinni í Istanbúl árið 2005 þegar liðið vann AC Milan í vítaspyrnukeppni eftir að hafa verið 3-0 undir í hálfleik.

Þetta voru fyrstu töpuðu stig Liverpool í keppninni á þessu tímabili en liðið hefur unnið Atletico Madrid, LASK og Villarreal.


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.