04.11.26 - 16:56
Elvar Geir Magnússon
Bjarki með 14 mörk í 12 leikjum fyrir unglingalið Dortmund

Bjarki Hrafn Garðarsson.

Mynd: Dortmund

Bjarki Hrafn Garðarsson.

Mynd: Dortmund
Unglingalandsliðsmaðurinn Bjarki Hrafn Garðarsson heldur áfram að raða inn mörkum fyrir U19 lið Borussia Dortmund. Hann skoraði í 2-2 jafntefli gegn Real Betis í Evrópukeppni unglingaliða í dag.
Bjarki kom Dortmund í 2-1 á 23. mínútu en Real Betis jafnaði fyrir hálfleik. Ekkert var skorað í seinni hálfleik.
Dortmund fékk hinn sextán ára gamla Bjarka, sem er stór og stæðilegur sóknarmaður, frá Stjörnunni í sumar. Hann er með 14 mörk í 12 leikjum fyrir unglingaliðið, mögnuð tölfræði.
Um síðustu helgi skoraði hann frábært mark úr aukaspyrnu í 2-0 sigri gegn Duisburg. Þá hefur hann einnig verið iðinn við kolann með yngri landsliðum Íslands.

Bjarki Gardarsson makes it 2-1 against Betis U19 after a great forward-defending action by Romeo Ritter.
— Daxo (@daxooo_) November 4, 2026
Gardarsson is back on the scoresheet once again. pic.twitter.com/O8xsHV5QOs