Fotbolti.net
04.11.26 - 17:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Það mikilvægasta fyrir Þrótt á næsta tímabili

Katie Cousins.

Katie Cousins.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Ef Þróttur nær að halda Katie Cousins hjá félaginu á næsta tímabili þá eru allar forsendur fyrir því að liðið geti blandað sér í alvöru toppbaráttu.

Katie kom aftur til Þróttar á miðju tímabilinu sem kláraðist í síðasta mánuði og hafði gríðarleg áhrif á liðið. Það er búist við því að hún verði áfram í Laugardalnum og það óhætt að segja að það sé það mikilvægasta fyrir liðið á næsta tímabili - að halda henni.
„Hvar væri Þróttur þá?"
TENGT EFNI

„Hvar væri Þróttur þá?"

„Maður heyrir að Katie verði líklegast áfram," sagði Arnar Páll Garðarsson í Uppbótartímanum.

„En ég veit líka að hún ætlar að enda ferilinn í Bandaríkjunum. Þannig að maður veit ekki alveg."

Katie er þrítug að aldri og kom fyrst til Íslands 2021 til að spila með Þrótti. Hún spilaði með Val 2024 og svo með Þrótti síðustu tvö ár.

Hægt er að hlusta á alla umræðuna í spilaranum hér fyrir neðan og á öllum hlaðvarpsveitum.
Í leik með Þrótti í sumar.

Í leik með Þrótti í sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Uppbótartíminn - Einkunnir og verðlaun fyrir tímabilið

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.