04.02.04 - 00:00
Magnús Már Einarsson
Catanha til Rússlands (Staðfest)




Sóknarmaðurinn Catanha hjá Celta Vigo hefur verið lánaður til rússnesku 2.deildarliðsins Krilia Sovetov og verður hann þar til vorsins 2006. Hinn 31 árs Catanha sem er frá Brasilíu hefur lítið spilað með Celta Vigo að undanförnu og átt í meiðslum undanfarin ár. Catanha kom til Celta frá Malaga árið 2000 og var markahæsti leikmaður Celta fyrstu tvö tímabil sín hjá félaginu og skoraði samanlagt 33 mörk þá. Síðan hefur leiðin legið niður á við hjá þessum fyrrum framherja Salamanca og nú er hann á leið til 2.deildarliðs í Rússlandi.
