04.02.04 - 00:00
Magnús Már Einarsson
Magnús Már í Leikni (Staðfest)

Stuðningsmenn Leiknis eru ávallt hressir.


Stuðningsmenn Leiknis eru ávallt hressir.

2.deildarlið Leiknis hefur fengið sóknarmanninn Magnús Már Þorvarðarson að láni frá Fylki en þetta kemur fram á heimasíðu Breiðholtsliðsins . Magnús Már fór til Fylkis fyrir síðasta tímabil frá Leikni en hann hefur einnig verið á mála hjá norska liðinu Molde. Magnús sem er 19 ára á bæði U-17 og U-19 ára landsleiki að baki með Íslendingum og mun hann styrkja Leiknismenn mjög.
Magnús er örvfættur og hefur yfir mikilli tækni og hraða að ráða. Hann hefur verið óheppinn með meiðsli en er nú aftur að komast í gott lag samkvæmt heimildum.
Þá hefur varnarmaðurinn Freyr Alexanderson fengið leikheimild með Leikni en hann hefur dvalið í Danmörku síðustu 12 mánuði.
Þá hefur varnarmaðurinn Freyr Alexanderson fengið leikheimild með Leikni en hann hefur dvalið í Danmörku síðustu 12 mánuði.
