04.04.21 - 13:02
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Svíþjóð: Jón Guðni í úrslit með Hammarby

Jón Guðni

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jón Guðni

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Djurgården 0 - 1 Hammarby
0-1 Aziz Ouattara Mohammed ('17)
0-1 Aziz Ouattara Mohammed ('17)
Hammarby er komið í úrslit eftir 0-1 sigur á Djurgarden í undanúrslitum sænska bikarsins.
Jón Guðni Fjóluson var í byrjunarliði Hammarby og lék allan leikinn í hjarta varnarinnar.
Það var Aziz Mohammed sem skoraði eina mark leiksins eftir undirbúning frá Gustav Ludwigsson.
Hammarby mætir BK Häcken í úrslitaleik keppninnar. Þeir Oskar Tor Sverrisson og Valgeir Lunddal Friðriksson eru leikmenn Häcken.
Úrslitaleikurinn fer fram þann 30. maí. Sænska Allsvenskan hefst um næstu helgi.