Pepsi Max-deild kvenna fer af stað í dag með tveimur sterkum leikjum en Íslandsmeistaralið Breiðabliks spilar við Fylki á Kópavogsvellinum.
ÍBV og Þór/KA eigast við í fyrsta leik deildarinnar en liðin mætast klukkan 18:00 á Hásteinsvellinum í Eyjum.
Breiðablik og Fylkir spila þá á Kópavogsvellinum klukkan 19:15 en Blikar unnu deildina á síðasta tímabili á meðan Fylkir hafnaði í þriðja sæti.
Leikir dagsins:
Pepsi-Max deild kvenna
18:00 ÍBV-Þór/KA (Hásteinsvöllur)
19:15 Breiðablik-Fylkir (Kópavogsvöllur)
Athugasemdir