04.06.04 - 14:25
Magnús Már Einarsson
Hofland til Wolfsburg (Staðfest)

Hofland til vinstri, í baráttunni.


Hofland til vinstri, í baráttunni.

Þýska liðið Wolfsburg hefur keypt hollenska varnarmanninn Kevin Hofland frá PSV Eindhoven fyrir óuppgefið fé. Hofland sem að er 24 ára á sex landsleiki að baki fyrir Hollendinga en hann skrifaði undir fjögurra ára samning við Wolfsburg í dag eftir að hafa staðist læknisskoðun fyrr í vikunni. Hofland mun hitta fyrir hjá Wolfsburg stjórann Erik Gerets en þeir voru báðir saman hjá PSV á sínum tíma.
