Fotbolti.net
04.06.22 - 18:13
Anton Freyr Jónsson

Daníel Leó: Tekur tíma að koma saman og spila sem lið

Auglýsing
Daníel Leó Grétarsson.

Daníel Leó Grétarsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Íslenska landsliðið er mætt til Reykjavíkur eftir langt ferðarlag frá Ísrael þar sem liðið gerði 2-2 jafntefli á fimmtudaginn gegn Ísrael í fyrsta leik liðsins í Þjóðadeildinni og Daníel Leó Grétarsson segir að skrokkurinn sé góður.

„Kemur á óvart hvað hann er góður. Ég hélt ég yrði aðeins verri. Það var heitt úti og völlurinn var þungur og síðustu 10 voru aðeins erfiðara en ég hélt. Þrátt fyrir margra tíma ferðalag þá er ég bara nokkuð góður."

Íslenska liðið spilaði mjög flott á köflum og eru margir ljósir punktar eftir þann leik sem liðið getur tekið með sér inn í næsta verkefni á móti Albaníu.

„Þegar við þorðum að þá fannst mér við gera það mjög vel. Við náðum góðum spilköflum en svo komu moment sem við þurfum að laga og það tekur auðvitað tíma að ná leik sem er hundrað prósent og þegar við náum þá vonandi náum við sigrinum. Þetta lofar góðu finnst mér."

Framundan er leikur á Laugardalsvelli gegn Albaníu og hefst sá leikur klukkan 18:45 á mánudaginn og segir Daníel að focusinn sé komin á það verkefni.

„Við vitum nokkurnvegin hvernig þeir spila en við eigum eftir setjast betur niður og fara yfir þá þannig þeir komi okkur ekki neitt á óvart."

Knattspyrnusambandið hefur fengið gagnrýni síðustu mánuði og náði liðið að svara henni með góðri frammistöðu úti á fimmtudaginn.

„Það eru margir nýjir inn í þessu og það tekur tíma að koma saman og spila sem lið. Mér finnst við með hverjum leik ná að stíga upp með hverjum leik sem við spilum."

„Stemmingin í hópnum er mjög góð. Við náum allir mjög vel saman og erum allir góðir vinir og það er mikilvægt og þetta er bara mjög góður hópur."
sagði Daníel Leó Grétarsson.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.