Neymar lagði landsliðsskóna á hilluna

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Brasilíska stórstjarnan Neymar hefur lagt landsliðsskóna á hilluna eftir að hafa skorað 80 mörk í 130 landsleikjum.

TENGT EFNI
Algjört stórslys Brasilíu - „Neymar getur ekki hreyft sig“
34 ára Neymar hefur verið að glíma við meiðsli og missti af upphafsleikjum heimsmeistaramótsins en kom svo við sögu í sigri gegn Skotlandi og tapinu gegn Noregi í 16-liða úrslitum fyrr í kvöld.
Neymar skoraði eina mark Brasilíu í 1-2 tapi gegn Norðmönnum og lagði landsliðsskóna á hilluna beint í kjölfarið.
Tilfinningarnar báru hann ofurliði og hágrét Neymar að leikslokum. Honum tókst ekki að vinna neinn stóran titil með brasilíska landsliðinu, hvorki HM né Suður-Ameríkubikarinn.
„Ég reyndi og ég reyndi. Þetta hófst hérna á Met Life stadium og þetta endar hér," sagði Neymar að leikslokum.