Fotbolti.net
06.07.26 - 00:01
Elvar Geir Magnússon

Veist að „svindlkallinn“ skorar ef þú kemur boltanum á hann

Erling Haaland stýrði róðrinum eftir leik.

Erling Haaland stýrði róðrinum eftir leik.

Canon

Mynd: EPA

Erling Haaland gerði svo sannarlega gæfumuninn þegar Noregur vann Brasilíu 2-1 í 16-liða úrslitum HM. Hann skoraði bæði mörk Noregs.

Þessi stórkostlegi sóknarmaður er kominn með 62 mörk í 54 landsleikjum. Hann stýrði 'róðrinum' eftir leikinn.

„Ég held að þetta hafi verið svakalegasta kvöld í sögu Noregs. Það er ólýsanlega stórt að spila fyrir Noreg. Ef ég næ að koma mér í eitt eða tvö færi verður það oftast að marki. Ég veit ekki hvernig ég fer að því en þetta snýst um einbeitingu," sagði Haaland eftir leikinn.
Sigurvíma í Osló - „Noregur getur unnið HM“
TENGT EFNI

Sigurvíma í Osló - „Noregur getur unnið HM“

Norskir fjölmiðlar tala um Haaland sem 'svindlkallinn'. Andreas Schjelderup kom af bekknum og lagði upp bæði mörk Haaland.

„Ef maður kemur boltanum til hans veit maður að hann mun skora. Hann er það góður. Við Norðmenn ættum að gleðjast yfir því að hafa svona leikmann sem getur ráðið úrslitum," segir Schjelderup.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.