Fotbolti.net
06.07.26 - 08:36
Ívan Guðjón Baldursson

Ochoa hættur í fótbolta (Staðfest)

Ochoa hættur í fótbolta (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Markvörðurinn Guillermo Ochoa hefur lagt hanskana á hilluna eftir 23 ára feril sem atvinnumaður í fótbolta.
Ochoa, sem er goðsögn og einn besti markvörður í sögu Mexíkó, var valinn í landsliðshópinn fyrir heimsmeistaramótið á heimavelli.

Hann fékk að spila tólf mínútur í þægilegum sigri gegn Tékklandi en sat á bekknum hina leikina, meðal annars í naumu tapi gegn Englandi í nótt.

Ochoa tilkynnti eftir tapið í nótt að hann væri hættur í fótbolta, en hann lék fyrir AEL Limassol í Kýpur á síðustu leiktíð eftir að hafa meðal annars verið hjá Málaga, Granada og Salernitana á ferlinum.

Ochoa, sem verður 41 árs eftir viku, er þriðji leikjahæsti maður í sögu Mexíkó með 153 landsleiki að baki.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.