Sigur í fyrsta leik Freysa - Mikael stimplaði sig strax inn

Mynd: Rosenborg

Mynd: AGF

Mynd: Rosenborg
Lærlingar Freys Alexanderssonar í liði Rosenborg lögðu Molde að velli í æfingaleik í dag.

TENGT EFNI
Glæsilegt mark hjá Ara eftir sendingu frá Júlíusi
Freysi byrjar því á sigri við stjórnvölinn hjá Rosenborg, sem er óvænt í fallsæti með 9 stig eftir 11 umferðir í Noregi en deildarkeppni hefst aftur eftir lok heimsmeistaramótsins.
Mikael Neville Anderson er þá kominn aftur til AGF í Århus eftir eitt ár hjá Djurgården í sænska boltanum. Dönsku meistararnir keyptu Mikael aftur til baka á dögunum og byrjaði hann á að skora í 4-0 sigri í æfingaleik gegn skoska liðinu Motherwell. Eyþór Martin Björgólfsson var ekki í byrjunarliði Motherwell.
Cloé Lacasse var í byrjunarliði Utah Royals í efstu deild í Bandaríkjunum og skoraði í 3-2 tapi gegn Chicago. Cloé er með fimm mörk og eina stoðsendingu í síðustu átta deildarleikjum með Utah, sem er í góðri stöðu með 24 stig eftir 13 umferðir.
Kolbeinn Þórðarson var að lokum í leikbanni er Gautaborg tapaði á heimavelli í efstu deild sænska boltans. Heimamenn náðu forystunni en gestirnir í liði AIK frá Stokkhólmi snéru stöðunni við og skópu sigur. Göteborg er í fallsæti, með 10 stig eftir 11 umferðir.
AGF 4 - 0 Motherwell
1-0 Mikael Anderson ('4)
2-0 Jacob Andersen ('57)
3-0 Sebastian Jörgensen ('69)
4-0 Sebastian Jörgensen ('87)
Chicago 3 - 2 Utah Royals
1-0 J. Huitema ('20)
1-1 Cloe Lacasse ('43)
1-2 C. Delzer ('54, víti)
2-2 S. Staab ('59)
3-2 J. Huitema ('86)
Rosenborg 2 - 1 Molde
Göteborg 1 - 2 AIK