Maður dagsins á HM - Sá hlær best sem síðast hlær

Örjan Nyland og Neymar áttu í orðaskiptum.

Mynd: EPA

Erling Haaland hirti nær allar fyrirsagnirnar eftir sigur Noregs gegn Brasilíu í 16-liða úrslitum HM. En markvörðurinn Örjan Nyland á einnig skilið mikið lof fyrir frækna frammistöðu.
Nyland er maður dagsins á HM en hann er félagslaus eftir að samningur hans við Sevilla rann út. Hann var mikið á bekknum á liðnu tímabili en frammistaða hans gegn Brasilíu gæti ekki verið betri auglýsing.
Eftir leikinn var hann spurður að því hvort hann væri kominn með tilboð frá félögum?
Nei ég er ekki búinn að skoða símann minn. Nú er ég að fara í lyfjapróf. Maður þarf að sinna því leiðinlega fyrst. Svo þarf maður að njóta sigursins, þetta var mikilvægasti leikurinn á ferli mínum," segir Nyland sem er 35 ára.

TENGT EFNI
Sjáðu HM mörkin: Haaland pakkaði Gabriel saman
Nyland varði vítaspyrnu Brasilíumanna og átti einnig ótrúlega vörslu í seinni hálfleik og kom í veg fyrir mark.
Hann þurfti hinsvegar að sækja boltann í netið í blálokin þegar Neymar minnkaði muninn úr vítaspyrnu. Eftir markið hló Neymar framan í andlit Nyland en þeir höfðu átt einhver orðaskipti fyrir spyrnuna. En sá hlær best sem síðast hlær.
Orkusalan og Fótbolti.net velja mann dagsins á HM á hverjum degi á meðan mótið er í gangi í Bandaríkjunum, Mexíkó og Kanada.