Algjört stórslys Brasilíu - „Neymar getur ekki hreyft sig“

Svekktir Brassar í leikslok.

Mynd: EPA

Neymar skoraði sárabótamark af vítapunktinum.

Mynd: EPA

Svekktir Brassar í leikslok.

Mynd: EPA
Frammistaða Brasilíu á HM voru gríðarleg vonbrigði og liðið féll úr leik í 16-liða úrslitum í kvöld, eftir 2-1 tap gegn Noregi.
„Þetta er algjört stórslys. Hvað gera þeir í framhaldinu? Carlo Ancelotti er með fjögurra ára samning. Hvernig stendur á því að Brasilía er ekki með miðju?" segir Tim Vickery, íþróttafréttamaður og sérfræðingur um fótboltann í Suður-Ameríku.

TENGT EFNI
HM: Haaland sendi Brasilíu heim
Það vakti mikla athygli að stórstjarnan Neymar var valinn í brasilíska hópinn fyrir mótið þrátt fyrir að hafa verið mikið meiddur undanfarin ár og var á meiðslalistanum í aðdraganda mótsins.
„Þetta var aldrei að fara að ganga upp með Neymar. Ancelotti talaði alltaf um að Neymar þyrfti að vinna fyrir því að komast í hópinn og að hann myndi ekki taka meidda leikmenn með sér á HM. Hann stóð ekki við orð sín," segir Vickery.
„Ég trúi því ekki ennþá að Neymar hafi komið inná. Hann getur varla hreyft sig. Það þurfti að breyta liðinu og taka Vinicius Junior og Endrick frá markinu. Það opnaði leiðir fyrir Noreg sem skoraði tvisvar."
Brasilía fór illa með nokkur frábær færi í leiknum, þar á meðal vítaspyrnu snemma leiks. Það kom á óvart að Bruno Guimaraes fór á punktinn en spyrna hans var varin. Þetta er í fyrsta sinn sem Brasilíumaður klúðrar víti á HM síðan Zico gerði það gegn Frakklandi í 8-liða úrslitum 1986 (vítakeppnir ekki teknar með).
Brasilía hefur aldrei unnið Noreg.Noregur hefur þrisvar sinnum unnið Brasilíu og þrisvar hafa viðureignir liðanna endað með jafntefli.