Crouch smeykur við að fá eldingu í sig


Mynd: EPA


Mynd: EPA
Fótboltamaðurinn fyrrverandi Peter Crouch er staddur á Azteca leikvanginum í Mexíkó þar sem hann starfar sem fótboltasérfræðingur í kringum landsleik Mexíkó og Englands í 16-liða úrslitum heimsmeistaramótsins.

TENGT EFNI
Upphafsflautinu frestað um klukkustund
Upphafsflautinu hefur verið frestað um klukkustund vegna þrumuveðurs og ákvað Crouch, sem er þekktur fyrir að vera mikill spaugari, að slá á létta strengi.
Crouch, sem er rúmir tveir metrar á hæð, birti mynd af sér á leikvanginum með texta: „Ef einhver verður fyrir eldingu þá er það ég, er það ekki?
If anyone gets hit by lightning it’s me isn’t it pic.twitter.com/n7BHZPh7w4
— Peter Crouch (@petercrouch) July 5, 2026




