FC Bayern leiðir kappið um vinstri bakvörðinn Nathaniel Brown sem er einnig eftirsóttur af Arsenal og Manchester United.
Brown er sókndjarfur bakvörður og fer með þýska landsliðinu á HM. Hann er aðeins 22 ára gamall og var lykilmaður í U21 landsliðinu.
Brown er samningsbundinn Eintracht Frankfurt næstu fjögur árin og vill félagið fá 60 milljónir evra til að selja hann.
Hann er spenntur fyrir Þýskalandsmeisturunum þar sem hann myndi berjast við meiðslapésann Alphonso Davies um sæti í byrjunarliðinu.
Öll stórveldi evrópska boltans sem eru í leit að nýjum vinstri bakverði eru með Brown á óskalistanum.
21.05.2026 15:21
Neuer verður aðalmarkvörður Þýskalands á HM



