Fotbolti.net
21.05.26 - 15:21
Elvar Geir Magnússon

Neuer verður aðalmarkvörður Þýskalands á HM

Manuel Neuer.

Manuel Neuer.

Canon

Mynd: EPA

Manuel Neuer hefur tekið landsliðshanskana úr hillunni og er í þýska hópnum fyrir HM.

Julian Nagelsmann landsliðsþjálfari segir að Neuer, sem er 40 ára, verði aðalmarkvörður Þýskalands á mótinu.

Neuer lék síðast fyrir Þýskaland í 8-liða úrslitum á EM 2024 þegar liðið tapaði gegn Spáni. Hann á 124 landsleiki. Á liðnu tímabili hjálpaði hann Bayern München að verða Þýskalandsmeistari og komast í undanúrslit Meistaradeildarinnar.
Meðal annarra leikmanna sem eru í þýska hópnum er Lennart Karl, ungstirni Bayern, en hann er 18 ára. Svona er HM hópur Þýskalands:

Markverðir: Oliver Baumann (Hoffenheim), Manuel Neuer (Bayern München), Alexander Nubel (Stuttgart)

Varnarmenn: Waldemar Anton (Borussia Dortmund), Nathaniel Brown (Eintracht Frankfurt), Joshua Kimmich (Bayern München), David Raum (RB Leipzig), Antonio Rudiger (Real Madrid), Nico Schlotterbeck (Borussia Dortmund), Jonathan Tah (Bayern München), Malick Thiaw (Newcastle United)

Miðjumenn: Nadiem Amiri (Mainz), Leon Goretzka (Bayern München), Pascal Gross (Brighton and Hove Albion), Jamie Leweling (Stuttgart), Jamal Musiala (Bayern München), Felix Nmecha (Borussia Dortmund), Aleksandar Pavlovic (Bayern München), Angelo Stiller (Stuttgart), Florian Wirtz (Liverpool)

Sóknarmenn: Maximilian Beier (Borussia Dortmund), Kai Havertz (Arsenal), Lennart Karl (Bayern München), Leroy Sane (Galatasaray), Deniz Undav (Stuttgart), Nick Woltemade (Newcastle United)

Lennart Karl.

Lennart Karl.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.