Fotbolti.net
04.07.26 - 18:06
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Lengjudeildin: Dramatík í sex marka jafntefli - Tvö mörk beint úr horni

Elfar Árni skoraði fyrir Völsung

Elfar Árni skoraði fyrir Völsung

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Lengjudeildin
Leiknir R. 3 - 3 Völsungur
0-1 Gestur Aron Sörensson ('12 )
1-1 Anton Fannar Kjartansson ('45 )
1-2 Elfar Árni Aðalsteinsson ('48 )
2-2 Gísli Alexander Ágústsson ('67 )
3-2 Dagur Ingi Hammer Gunnarsson ('74 )
3-3 Tryggvi Grani Jóhannsson ('92 )
Lestu um leikinn
Leiknir fékk Völsung í heimsókn í Lengjudeildinni í dag. Leiknir er í efri hlutanum en Völsungur í fallbaráttu.

Gestur Aron Sörensson skoraði beint úr hornspyrnu og kom Völsungi yfir. Leiknir náði að jafna í uppbótatíma fyrri hálfleiks en Anton Fannar Kjartansson fékk boltann við markteiginn og skoraði að öryggi.

Völsungur endurheimti forystuna strax í upphafi seinni hálfleiks þegar Elfar Árni Aðalsteinsson skoraði með skalla. Gísli Alexander Ágústsson jafnaði metin og aftur var það mark beint úr hornspyrnu.

Dagur Ingi Hammer Gunnarsson kom síðan Leiknismönnum yfir en Tryggvi Grani Jóhannsson jafnaði metin í uppbótatíma og bjargaði stigi fyrir Völsung.

Völsungur er í 11. sæti með átta stig en Leiknir er í 5. sæti með 19 stig.

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Afturelding14+2231
2Þróttur R.15+1730
3Fylkir14+1230
4HK15+1028
5Grótta14+122
6Vestri15-521
7Njarðvík14+120
8Leiknir R.15-419
9Grindavík14-314
10ÍR15-1113
11Völsungur14-178
12Ægir15-238
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.