Fotbolti.net
04.07.26 - 15:29
Brynjar Ingi Erluson

Nathan Ake til Fenerbahce (Staðfest)

Nathan Ake til Fenerbahce (Staðfest)
Canon

Mynd: Fenerbahce

Hollenski varnarmaðurinn Nathan Ake er genginn í raðir Fenerbahce frá Manchester City fyrir 8,5 milljónir punda.
Ake er 31 árs gamall og kom til Manchester City frá Bournemouth fyrir 41 milljón punda árið 2020.

Hann spilaði 177 leiki með City á þessum sex árum og vann ensku úrvalsdeildina fjórum sinnum. Hann var einnig hluti af liðinu sem vann Meistaradeildina í fyrsta sinn í sögu félagsins.

Fenerbahce hefur átt í viðræðum við Ake síðustu daga og eru félagaskiptin nú staðfest.

Tyrkneska félagið greiðir aðeins 8,5 milljónir punda fyrir Ake, sem átti aðeins eitt ár eftir af samningi sínum við City.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.