Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   mið 04. ágúst 2021 19:55
Brynjar Ingi Erluson
Lukaku vill fara til Chelsea
Romelu Lukaku vill fara aftur til Chelsea
Romelu Lukaku vill fara aftur til Chelsea
Mynd: Getty Images
Belgíski framherjinn Romelu Lukaku hefur mikinn áhuga á að fara aftur til Chelsea en það er Sky Sports sem greinir frá þessu í kvöld.

Inter hafnaði fyrsta tilboði Chelsea í Lukaku. Enska félagið bauð 85 milljónir punda og Marcos Alonso með í kaupbæti en Inter var ekki lengi að neita því.

Chelsea hefur nú ákveðið að leggja fram annað tilboð sem hljóðar upp á 110 milljónir punda og mun Inter samþykkja það tilboð.

Samkvæmt Sky Sports þá hefur Lukaku tjáð Inter að hann vilji fara til Chelsea ef Inter fær ásættanlegt tilboð og því fátt sem kemur í veg fyrir að hann spili í ensku úrvalsdeildinni á næsta tímabili.

Lukaku hefur skorað 47 mörk í 72 leikjum fyrir Inter frá því hann kom frá Manchester United.

Inter varð deildarmeistari á síðustu leiktíð en þrátt fyrir þann árangur gengur rekstur félagsins erfiðlega og því þörf á að selja lykilmenn.
Athugasemdir
banner
banner