Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   fim 04. ágúst 2022 15:54
Arnar Laufdal Arnarsson
Kom úr 3. deildinni og beint í stórt hlutverk hjá Stjörnunni
Sindri spilar nánast hverja mínútu hjá Stjörnunni.
Sindri spilar nánast hverja mínútu hjá Stjörnunni.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Hinn 23 ára gamli Sindri Þór Ingimarsson hefur spilað nánast alla leiki Stjörnunnar í Bestu deildinni í sumar. Hann kom til félagsins frá Augnabliki í 3. deildinni fyrir tímabilið og hefur verið í stóru hlutverki í hjarta varnarinnar hjá þeim bláu.

Jökull Elísabetarson, aðstoðarþjálfari Stjörnunnar, var þjálfari Augnabliks og þekkir Sindra út og inn.

Ágúst Gylfason, þjálfari Stjörnunnar, var spurður út í frammistöðu Sindra eftir 2-2 jafntefli Garðabæjarliðsins gegn Fram í gær.

„Ég og Jökull vorum búnir að teikna það upp að hann gæti sett mark sitt á okkar lið. Það kemur kannski svolítið á óvart að hann hefur spilað nánast allar mínútur og staðið sig frábærlega vel. Þetta er fyrsta árið hans í úrvalsdeild svo þú getur ímyndað þér hvernig hann verður á næsta ári," segir Ágúst.

Sindri lék með vinum sínum í Augnabliki á meðan hann var að stunda nám í Bandaríkjunum. Haraldur Björnsson, markvörður Stjörnunnar, segir ákaflega gott að spila með Sindra fyrir framan sig.

„Við höfum fengið fá mörk á okkur. Hann er góður í fótunum, er vel spilandi leikmaður. Hann var í háskóla úti og leikmenn þar eru í hörkuprógrammi. Hann kom svo hingað til lands yfir sumarið, hann hefði getað spilað á mun hærra leveli en í 3. deildinni en nú er hann kominn á þann stað sem hann á að vera á," segir Haraldur.
Athugasemdir
banner
banner
banner