Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 04. ágúst 2022 09:05
Elvar Geir Magnússon
Sjáðu mörkin: Valur jók á vandræði FH - Fjögur mörk í Úlfarsárdal
Mynd: Fótbolti.net - J.L.
FH hefur enn ekki náð að vinna deildarleik undir stjórn Eiðs Smára Guðjohnsen. Liðið er í fallbaráttu og tapaði 2-0 gegn Val í gær þar sem Guðmundur Andri Tryggvason skoraði tvívegis.

Í Úlfarsárdal skoraði Emil Atlason snemma leiks fyrir Stjörnuna gegn Fram. Tiago skoraði þá tvívegis og kom Fram í forystu, seinna mark hans kom eftir hrikaleg mistök Þórarins Inga Valdimarssonar.

En Guðmundur Baldvin Nökkvason tryggði Stjörnunni stig með frábæru skallamarki.

Vísir.is hefur bort mörk gærkvöldsins úr Bestu deildinni og má sjá þau hér að neðan.

Valur 2 - 0 FH
1-0 Guðmundur Andri Tryggvason ('42)
2-0 Guðmundur Andri Tryggvason ('63)



Fram 2 - 2 Stjarnan
0-1 Emil Atlason ('4)
1-1 Tiago Fernandes ('7)
2-1 Tiago Fernandes ('16)
2-2 Guðmundur Baldvin Nökkvason ('84)


Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner