Fotbolti.net
04.08.26 - 15:25
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Aron Einar: Erfiðasta ákvörðun sem ég hef tekið á ferlinum

Aron Einar í sínum eina leik með Þór í sumar.

Aron Einar í sínum eina leik með Þór í sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Aron Einar Gunnarsson, fyrrum landsliðsfyrirliði Íslands, spilaði aðeins einn leik með Þór í sumar áður en hann ákvað að fara aftur til Katar.

Aron Einar spilaði sinn fyrsta og eina leik í 2-1 sigri á Víkingi sem var fyrsta tap Íslandsmeistarana í deildinni í sumar.
Aron spilaði með Al-Arabi í Katar frá 2019–2024 áður en hann stoppaði stutt hjá Þór. Hann sneri aftur til Katar og samdi við Al-Gharafa og er nú farinn í þriðja sinn. Hann samdi við Qatar SC í þetta skiptið.

Aron ritar kveðju til Þórsara sem birtist á Akureyri.net þar sem hann segir meðal annars að þetta sé erfiðasta ákvörðun sem hann hefur tekið á ferlinum.

„Hlutirnir gerðust alltof hratt í erfiðustu ákvörðun sem ég hef tekið á ferlinum - að fara aftur til Katar eftir aðeins einn leik með Þór í þetta skipti. Margt spilar þar inn í sem við förum yfir á pallinum við Hamar við gott tækifæri," segir Aron.

„Ég náði styttra stoppi en ég átti von á, fékk tilboð í kringum Víkingsleikinn og náði ekki að njóta mín eftir hann, en þetta kemur ekki fyrir aftur þegar ég kem heim. Þegar ég kem heim næst verður það til þess að klára ferilinn með mínu fólki."

„Ég vona að þið, kæru Þórsarar, berið virðingu fyrir ákvörðuninni sem ég tók fyrir fjölskylduna og sjálfan mig," skrifar Aron jafnframt.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.