Fotbolti.net
04.08.26 - 21:07
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Aron Lucas frá Selfossi til Eyja (Staðfest)

Aron Lucas frá Selfossi til Eyja (Staðfest)
Canon

Mynd: Selfoss

Aron Lucas Vokes (2004) er genginn til liðs við ÍBV á láni frá Selfossi en ÍBV hefur kauprétt á honum eftir tímabilið.
Tilkynning frá Selfossi

Knattspyrnudeild Selfoss og ÍBV hafa komist að samkomulagi um að Aron Lucas Vokes gangi í raðir ÍBV á láni út leiktíðina. ÍBV hefur síðan kauprétt á Aroni eftir tímabil.

Aron Lucas Vokes hefur undanfarin ár verið afar mikilvægur leikmaður fyrir Selfoss. Hann hefur æft með félaginu upp yngri flokka en hann kom svo sem stormsveipur inn í meistaraflokk félagsins sumarið 2024 þegar hann lék 22 leiki.

Á lokahófi félagsins í fyrra var Aron Lucas valinn besti miðjumaðurinn, besti leikmaður tímabilsins ásamt því að vera markahæstur.

Aron hefur átt gott sumar í vínrauðu treyjunni en hann skoraði sjö mörk í 2. deildinni í fjórtán leikjum.

Við óskum Aroni alls hins besta á eyjunni fögru og þökkum fyrir tímann á Selfossi.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.