Fotbolti.net
04.08.26 - 11:50
Elvar Geir Magnússon

Coventry hefur keypt Rushworth (Staðfest)

Coventry hefur keypt Rushworth (Staðfest)
Canon

Mynd: Coventry

Coventry City hefur keypt markvörðinn Carl Rushworth frá Brighton & Hove Albion, í kjölfar vel heppnaðrar lánsdvalar hans hjá félaginu.
Kaupverðið er sagt vera metupphæð fyrir félagið, eða um 22 milljónir punda.

Rushworth, sem er 25 ára, lék alla 46 deildarleiki Coventry á síðustu leiktíð og hélt markinu hreinu í 17 þeirra þegar liðið vann Championship-deildina og batt þar með enda á 25 ára bið eftir endurkomu í úrvalsdeildina.

Rushworth lék aldrei með aðalliði Brighton en fór sex sinnum á lán til annarra félaga á sjö ára tímabili eftir að hafa samið við félagið frá uppeldisfélagi sínu, Halifax Town, árið 2019.

„Það er frábært að fá Carl aftur til okkar á varanlegum samningi," segir Frank Lampard. „Hann er fyrirmyndar atvinnumaður og frábær karakter, og hann hafði mikil áhrif á liðið og hjálpaði okkur að tryggja okkur upp um deild.“

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.