Fotbolti.net
04.08.26 - 21:50
Elvar Geir Magnússon

FH fær ungan danskan framherja (Staðfest)

FH fær ungan danskan framherja (Staðfest)
Canon

Mynd: FH

FH hefur tilkynnt að félagið hafi samið við tvítugan danskan framherja sem ber nafnið Bastian Andersen.

Hann hefur skrifað undir tveggja ára samning við FH.

Hann er uppalinn hjá Randers en spilaði á síðasta tímabili fyrir VSK Aarhus í dönsku 2. deildinni.
„Bastian er spennandi leikmaður með mikinn hraða, líkamlega sterkur og með góða grunntækni. Þetta er fjárfesting til framtíðar hjá okkur, höfum trú á því að hann geti orðið virkilega öflugur framherji." sagði Davíð Þór Viðarsson, yfirmaður fótboltamála FH, við fjölmiðladeild félagsins.

FH er í harðri fallbaráttu í Bestu deildinni en liðið er í neðsta sæti eftir að Þór vann Breiðablik fyrir norðan í kvöld. FH-ingar fá KR-inga í heimsókn annað kvöld.

Stöðuna í deildinni má sjá hér fyrir neðan.

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Víkingur R.19+4448
2KR19+2540
3Fram19+1340
4Breiðablik19+630
5ÍA19-425
6Keflavík19-425
7Valur19-523
8Stjarnan19-1221
9ÍBV19-1117
10FH19-1217
11KA19-1216
12Þór19-2815
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.