Fotbolti.net
04.08.26 - 10:01
Kári Snorrason
Franski boltinn

Giovanni Reyna til Strasbourg (Staðfest)

Þótti mikið efni.

Þótti mikið efni.

Canon

Mynd: Strasbourg

Bandaríkjamaðurinn Giovanni Reyna er genginn í raðir Strasbourg frá þýska félaginu Borussia Mönchengladbach.

Hann skrifar undir fimm ára samning við franska félagið og er verðmiðinn sagður vera um þrjár milljónir punda.

Reyna var ein helsta vonarstjarna Bandaríkjanna og þótti mikið efni þegar hann var að brjótast í gegn með Dortmund fyrir um sex árum.

Hann hefur ekki náð þeim hæðum sem vonast var eftir en þessi 23 ára sóknarsinnaði miðjumaður var keyptur til Mönchengladbach í fyrra og kom lítið við sögu.

Hann gekk til liðs við Nottingham Forest í janúar 2024 á láni og spilaði tíu leiki án þess að skora.

Reyna kom þó við sögu í öllum fimm leikjum Bandaríkjanna á HM en liðið datt út í 16-liða úrslitum gegn Belgíu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.