04.08.26 - 11:18
Kári Snorrason
HM hetjan Nyland til Leipzig (Staðfest)

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Norðmaðurinn Örjan Nyland er genginn í raðir þýska liðsins RB Leipzig. Hann gengur til liðs við félagið á frjálsri sölu frá Sevilla en samningur hans þar rann út fyrr í sumar.
Nyland var stórkostlegur í marki Noregs á heimsmeistaramótinu í sumar og átti stóran þátt í því að liðið komst alla leið í átta liða úrslit.
Frammistaðan vakti mikla athygli og voru mörg félög orðuð við þennan 35 ára markvörð.

Þetta verður í annað sinn sem Nyland gengur til liðs við Leipzig. Félagið fékk hann til sín árið 2022 eftir að Peter Gulacsi og Janis Blaswich, þáverandi markverðir liðsins, meiddust en Norðmaðurinn lék aðeins þrjá leiki og yfirgaf félagið að tímabilinu loknu.
Peter Gulacsi hefur staðið í marki Leipzig í rúman áratug en hann var í gær tilkynntur sem nýr leikmaður Villareal.
Peter Gulacsi hefur staðið í marki Leipzig í rúman áratug en hann var í gær tilkynntur sem nýr leikmaður Villareal.
Ein bekanntes Gesicht. Ein neues Kapitel. ?????? pic.twitter.com/jYNapbpzgZ
— RB Leipzig (@RBLeipzig) August 4, 2026