04.08.26 - 17:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Úr leikmanni yfir í einn öflugasta dómara landsins

Þórður Þorsteinn Þórðarson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

ÞÞÞ að störfum.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ætlar sér að ná langt.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þórður Þorsteinn Þórðarson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Ég stefni á að ná eins langt og ég get, hundrað prósent," segir Þórður Þorsteinn Þórðarson sem er í dag orðinn einn öflugasti dómari landsins.
Þessi frétt er hluti af pistli sem birtist 1. ágúst á áskriftarvef Fótbolti.net. Pistillinn í heild sinni er hægt að nálgast neðst í fréttinni, en boðið er upp á ókeypis viku áskrift gegn skráningu.
Smelltu hér til að skrá þig í fría viku og lesa pistilinn í heild sinni.

Þórður Þorsteinn spilaði í dágóðan tíma í efstu deild en þegar gleðin við að spila fór að dvína tók ferillinn áhugaverða stefnu.
„Það var orðið meiri kvöð en gleði að mæta á fótboltaæfingar. Mig langaði samt ekki að hætta alveg í fótbolta. Ívar Orri, sem er að mínu mati einn af okkar allra bestu dómurum í dag, hafði komið að orði við mig ári áður en ég byrjaði og spurði hvort ég vildi ekki prófa að dæma. Samtalið endaði á því að ég myndi heyra í honum ári síðar. Ég byrjaði síðan að dæma árið 2022 og fann strax hvað þetta var skemmtilegt. Ívar Orri á eiginlega stóran heiður af því hvernig dómari ég er í dag," segir Þórður.
Á aðeins fjórum árum hefur Þórður unnið sig upp í hóp efnilegustu dómara landsins og fengið tækifæri í efstu deild. Þróun hans hefur ekki farið fram hjá þeim sem fylgjast náið með íslenskri dómgæslu.
En hvernig dómari er ÞÞÞ?
„Ég myndi segja að ég sé dómari sem reynir að leyfa mikið og halda flæði leiksins eins og hægt er. Mig langar að vera þannig dómari að þegar leikmenn labba af vellinum muni þeir varla hver dæmdi leikinn. Staðan er sú að það er einn maður uppi í stúku sem fylgist sérstaklega með dómaranum, eftirlitsmaðurinn. Allir hinir eru búnir að borga sig inn til að horfa á ellefu á móti ellefu spila fótbolta. Þannig dómari vil ég vera. Ég vil vera sanngjarn og sjá til þess að leikurinn fari vel fram. Maður vill leyfa tilfinningar, en þær mega ekki fara út í einhverjar öfgar.“
Skagamaðurinn ætlar sér að ná langt í þessum bransa.
„Ísland hefur fjögur sæti hjá UEFA fyrir alþjóðlega aðaldómara og öll þau sæti eru skipuð toppdómurum. Það er eitthvað sem maður stefnir á. Ég er bara 31 árs og á vonandi tíma til að ná þeim. Markmiðið mitt er eins og þegar ég spilaði fótbolta; maður vill verða bestur," sagði ÞÞÞ.

TENGT EFNI
Gæti Íslendingur dæmt úrslitaleik HM?

ÞÞÞ að störfum.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ætlar sér að ná langt.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð